13. október 2007

kvæði eftir mig

Flokkur: Óflokkað — Áróra @ 21:13

Mundu mig og ég man þig alla tíð og tímar ef þú  þarft að finna mig þá hef ég þennan síma.??***-

6. júní 2007

hjá Laufey

Flokkur: Óflokkað — Áróra @ 17:54

halló í dag er 6\6 og ég var að leika mér við Laufey og við vorum að spila á fiðluna hennar. Við fórum líka að leika við Bríeti og kíktum á kanínurnar hennar . Og síðan fórum við að hjóla og hittum Siggu mömmu Laufeyar . Og við hjóluðum í Samkaup Úrval og Sigga bauð okkur ís og ég og Laufey feyngum okkur grímuna og síðan heim til Laufeyjar í clubpengvin og síðann inna þessa dagbók en er ekki búinn með meira af þessum degi þannig að ég segi núna bæ bæ

16. mars 2007

Í Reykjavík hjá ömmu

Flokkur: Óflokkað — Áróra @ 20:10

Halló I dag er ég i Reykjavík hjá Oggu ömmu, og ég gisti hjá henni.  Mamma kom og sótti mig í morgun til að heimsækja Birnu í Mosó. Við vorum hjá Birnu í 3 klukkutíma og síðan fórum við aftur til ömmu Oggu í kvöldmat. Nú er maturinn búinn mömmusteikin, og mamma og Pabbi fara í bíó og Viktoría fær að gista hjá Ilmi. Ég og Baddi gistum hjá ömmu og afa ínótt. Á morgun skrifa ég kanski meira.

21. febrúar 2007

Öskudagur á Dalvík

Flokkur: Óflokkað — Áróra @ 21:28

í dag 20.feb 07  er öskudagur 2007  Ég fék mikið nammi. Ég fór út um allan bæ . Og  pabbi var með okkur. Og keyrði okkur út um allt, ég f ék fulla skál og ég var frá  8 til 12 og pokin minn var  að verða fullur en nú er allt búið bæ bæ bæ

Æfing á Cornet og skíðum

Flokkur: Óflokkað — Áróra @ 21:22

Ég fór á skíða æfingu það var rigning og svo fór ég á  samæfingu og þegar hún var búin fannst mér hún sov stutt  að ég bað um að vera lengur. Og ég hjálpaði kenaranum að ljósrita stóran bunka að blöðum. Bæ Bæ

  

12. febrúar 2007

Skíðaæfingar í góðu veðri

Flokkur: Óflokkað — Áróra @ 19:09

Ég fór á skíði í dag og ég var að leika við Freidísi, Ólöfu, Bríeti, og Guðna. Við fengum að leggja svigbraut af því að Bjöggi og Snæþór voru í fríi v/ kirkjuvesen og leyfðum öllum að fara í brautina.

11. febrúar 2007

Fyrsta færslan í þessa dagbók

Flokkur: Óflokkað — Áróra @ 12:22

þetta er nú bara prufa til að sjá hvernig virkar

Halló heimur!

Flokkur: Óflokkað — Áróra @ 12:16

Velkomin á Vefdagbok.com. Þetta er fyrsta færslan. , og ég er byrjuð að blogga!